Sunday, January 16, 2005
Nýtt ár... nýtt blogg... ný manneskja :)

Halló... smá tilkynning til lesenda minna...  ég er flutt og mun ekki oftar eða allavega þá verður það mjög sjaldan að ég skrifi á þessa síðu aftur en ég ákvað að flytja mig yfir á blog.central.is og athuga hvernig veðrið væri þar...
eníveis... slóðin er eftirfarandi: http://www.blog.central.is/kristveigth

endilega látið sjá ykkur...
Kveðja Kristveig

Posted at 23:09 by kristveig
Komment  

Thursday, December 23, 2004
Þorláksmessa


Jæja sæl og blessuð allir saman... jæja það er víst kominn ansi langur tími síðan ég skrifaði síðast... en allavega... biðst afsökunar á því. Jæja í dag er Þorláksmessa og það er hann kertasníkir sem kemur í bæinn í nótt það var nú þess vegna sem ég lét fylgja mynd af honum :) Þetta er nú alveg ágætis mynd af honum þó hef ég aldrei séð hann í þessu ljósi :)
eníveis... ég er núna bara heima og er að klára að taka til og sonna... ég er búin að kaupa allar gjafir þannig að ég er eiginlega bara ready fyrir jólin en ég á reyndar eftir að gera eitthvað smá.... Jæja jæja um seinustu helgi fór ég að djamma... það var sko á laugardaginn... Fyrst fór ég í brúðkaup og það var frábært... til hamingju aftur Kristbjörg og Svenni.... Svo eftir það fór ég til Möggu í afmæli en hún varð 19 ára seinast sunnudag... til hamingju aftur elsku Magga mín... það var líka frábært....Svo kom Vanessa til mín í afmælið og við fórum niður í bæ... Við vorum ákveðnar í að fara á Hverfisbarinn en vá eruði að djóka með raðirnar sem voru ... við biðum örugglega svona 2-3 tíma bara í röðum... frekar pirrandi .... svo komumst við loksins inn á Hverfis og vá hvað það var gaman... við dönsuðum af okkur tærnar... það var mjög gaman...
Jæja eníveis.... þetta var skemmtilegt próflokadjamm og svo er bara aldrei að vita nema maður geri eitthvað annan í jólum...
Jæja ég vil bara óska öllum gleðilegra jóla og hafiði það sem allra best yfir jólin... reyna að skrifa aftur sem fyrst :)
bæjó spæjó
Kristveig  

Posted at 16:45 by kristveig
Comments (4)  

Thursday, November 04, 2004
Fimmtudagar... allir voða svipaðir..

hæhæ og halló.... bara annar dagurinn í röð... afrek eða hvað ;) Jæja dagurinn í dag var bara ágætur eða svona ... miðað við fimmtudaga. Ekkert fór úrskeiðis engum kortum týnt eða svoleiðis... Ég hins vegar fór og sótti nýja kreditkortið mitt... useless information en...
Hey já ég fékk fyrsta boðskortið mitt á ævinni í brúðkaup! Sem sagt frænka mín hún Kristbjörg er að fara gifta sig honum Svenna sínum. Ég allavega hlakka rosa mikið til:)
Hmmm já Bush bara vann síðan þessar blessuðu kosningar... ég verð nú að segja fyrir mitt álit að ég hefði viljað sjá Kerry. Samt var ég voðalítið búin að kynna mér þessar kosningar en ég vildi bara sjá einhver nýjan...
Já svona er þetta... prófin bara að fara að skella á... only 3 weeks... maður verður að massa þetta, seinasta árið og svona:)
vá ég er farin að steypa svona asskolli mikið og það er ekkert spennandi sem ég get sagt frá meira shannig að... maður ætti kannski bara að hætta þessari vítleysu hvernig væri það... bara svona í dag...
... eníveis ég er að hugsa  um að fara bara að gera eitthvað af viti, hvernig væri það nú...
bæbbs
Kristveig 

Posted at 18:27 by kristveig
Comments (3)  

Wednesday, November 03, 2004
hvar var ég nú aftur...

Jæja hvað haldiði... er mín ekki bara sest við tölvuna og byrjuð að skrifa... það verður nú að segjast að ég er nú orðin frekar léleg að blogga upp á síðkastið en ég get þó allavega sagt að ég sé allavega með blogg ... það er nú effort út af fyrir sig ekki satt... Vá þetta var soldið löng setning ... Jæja ég er að hugsa um að taka saman svona í mjög grófum dráttum það sem hefur drifið á mína daga undanfarið:
  • búin að vera á fullu í skólanum síðan í lok ágúst - btw er að fara útskrifast næsta vor ;)
  • fór í vetrarfríinu mínu til London með bekknum mínum - geðveikt stuð !!! en ekki hvað...
  • var veik :(
  • er búin að djamma þónokkuð...
  • hætti að vinna :( (good reason)
  • búin að fara í fullt af prófum
  • keypti mér kort í betró og byrjuð að æfa á fullu ...
  • fór á seinasta verslóballið mitt... (fer ekki aftur!!... nema þá bara á nemó)
  • endurnýjaði bloggið mitt
  • og sit við að skrifa
  • týndi vísakortinu mínu (2svar - þetta nýrra fannst svo aftur... my mistake...nb.. fyrra skiptið var því stolið þegar ég var í london... þ.a. ég keypti ekki neitt nema einn bol ..)
  • hraðbankinn gleypti debetkortið mitt... ( bankarnir eru eitthvað á móti mér núna..)

... jæja þetta er stiklað á mjög stóru hérna... en já eruði að grínast með þetta... ok.. í gær fór ég í sakleysi mínu og ætlaði að taka út pening. Ég stimplaði inn leyninúmerið mitt og viti menn bankinn bara gleypti kortið mitt sisona....#$%$#&#$... varð frekar ósátt. þar sem ég þurfti svo að eyða löngum tíma í bið til að láta vita af því.. svo fékk ég nú kortið mitt í dag og ætlaði að fara að borga með því ... nei þá var búið að tilkynna það stolið og því var lokað.... þannig að ég þurfti að gjöra svo vel að hringja upp í banka og eyða enn meira af símareikningnum mínum til að opna #$%#$# kortið... en allavega svona er nú það :)
Jæja ég þarf víst að fara að æfa mig á flautuna...
Goodbye for now
Kristveig

 


Posted at 17:46 by kristveig
Comments (7)  

Sunday, September 12, 2004
...

okí dókí... þetta var skemmtileg helgi nóg að gera :) ég sé að ég er ekki greinilega að massa þetta blogg stúss en só sorry bara :( æll dú mæ best
góða nótt krúsídúllurnar mínar

Posted at 23:43 by kristveig
Comments (4)  

Sunday, September 05, 2004
Rosa fín helgi bara...

Góða kvöldið!!
Dugleg og ekki dugleg það er spurningin sem ég því miður þykist vita svarið við :) eníveis... ég reyni mitt besta..
Helgin er búin að vera mjög fín en er núna búin :( frekar leiðilegt en hey það kemur ný helgi eftir þessa helgi maður þarf víst bara að bíða smá... en vá ég skal hætta að bulla svona og segja ykkur hvað maður var að bralla þessa helgi. Sem sagt á föstudagskvöldið fóru ég og Magga á Borgina og vorum believe it or not að læra ... Reyndar byrjuðum við ekki strax að læra því það var e-r Pólverji sem var þvílíkt að reyna að tala við Möggu og Magga greyið vildi ekki vera dónaleg en samt var hún frekar mikið pirruð.. skiljanlega.. Hann var e-ð að röfla um Rússland og Tjetseníu og eitthvað en við eiginlega höldum að hann hafi verið að segja það því hann talaði eiginlega bara pólsku (höldum við) og stundum kom e-r bjöguð enska út úr honum. Svo var honum hent út eftir að þjónninn var búinn að ítreka það ansi oft við hann að láta okkur í friði... Athyglin var öll á okkur frekar óþægilegt þar sem við vorum bara í sakleysi okkar að reyna að læra... Hey en þetta er ekki búið því þegar hann var farinn út og við héldum að við værum lausar við hann þá kom hann á gluggan hjá okkur og var að banka á fullu... SAD but TRUE!!!
Jæja á laugardaginn fór ég í tvítugsafmæli hjá Þurý og þar var svaka stuð. Ég reyndar fór svo um 11 leytið til Viktoríu því hún var að halda innflutningspartý. Hrund skutlaði svo mér, Möggu, Ívari og Möggu Stínu niður í bæ og við fórum á Ara. Við vorum á rölti og kíktum á Felix og dönsuðum svaka mikið þar... Ég fékk heilt bjórglas yfir mig og e-r brenndi á mér bakið með sígarettu þannig að ég er með brunasár :( vont en það líklega venst. Við vorum svo bara komin heim um 4 leytið.
Dagurinn í dag er búinn að vera ágætur... ég vaknaði frekar snemma miðað við að það er sunnudagur og fór í ikea og keypti mér eitthvað dót í herbergið mitt og svo er ég eiginlega bara búin að vera að hanga....
Jæja líklega er þetta orðið gott í bili
cya
Kristveig

Posted at 22:26 by kristveig
Comments (3)  

Monday, August 30, 2004
Helgin á enda og vikan bara byrjuð....

Jæja elskurnar mínar!!!
Þá er önnur vikan byrjuð í skólanum... gaman gaman... nei nei það er stuð :) Allavega helgin var mjög skemmtileg. Á föstudaginn fór ég að borða á stælnum með Laufeyju ... ummmm.. það var rosagott eins og alltaf! Svo eftir það fórum við í bíó og sáum mynd sem heitir The Notebook... og er btw æðisleg mynd samt rosaleg stelpumynd en þetta var rosalegt ég grét og grét... ég á það til að vera rosalega viðkvæm nefnilega á svona myndum :) that´s me! Þannig að þetta var mjög rólegur föstudagur. Á laugardaginn var mér boðið í 2 tvítugsafmæli og svo var James Brown... ég þurfti að velja á milli annars vegar að fara í afmælið sem var í Þorlákshöfn eða hitt sem var upp í Mosó og svo tónleikarnir. Það sem varð fyrir valinu var afmælið í Mosó þar sem mér fannst betra að vera nær borginni þar sem ég var að fara að vinna daginn eftir. Eníveis... það var rosastuð. Ég gerðist svo grand á því að ég tók með mér hvítvínsflösku sem ég fékk í jólagjöf frá familíunni í Frakklandi og vá... ég verð að segja að þetta var gæðavín og aldrei smakkað jafn gott hvítvín enda sérsent frá landi sem frægt er fyrir góð vín ekki satt ;) Um eitt leytið fórum við niður í bæ og skemmtum okkur konunglega.. vorum eiginlega allan tímann á Ara þar sem var rosa góð stemmning og svo litum við inn hér og þar.
Allavega þetta var skemmtilegt kvöld og svo vaknaði ég hress og kát í vinnuna daginn eftir.
Jæja dagskráin fyrir kvöldið í kvöld er ekki stórmerkilegt en ég er líklega að fara að taka til og læra og svo bara slappa af. Ég er að hugsa um að segja skilið við ykkur og óska ykkur alls hins besta þangað til næst :)
bæjó
Kristveig

Posted at 18:52 by kristveig
Comments (4)  

Tuesday, August 24, 2004
Back to school !!

Jæja þá er komið að því skólinn byrjaður og fjörið allt búið. Ég ákvað í sumar að taka mér bara sumarfrí frá bloggi þar sem maður var svo upptekin að njóta sumarsins og sonna... Ég var búin að lofa að byrja blogga fyrir sem sagt morgundaginn og ég stend við það loforð.
Jæja ég nenni nú ekki að fara telja upp það sem ég hef verið að gera síðustu vikurnar en það er get ég sagt ykkur búið að vera rosa gaman og ég held ég geti nú bara sagt að þetta sumar er búið að vera eitt af því skemmtilegasta.
Jæja sem sagt skólinn byrjaði í dag á fullu og það var bara fínt verð ég að segja. Kennarinir voru ekkert að spara heimanámið þó að það sé fyrsta vikan. Alvaran er sem sagt tekin við hreint út sagt.
Ég var að koma heim af kaffihúsi en við fórum stelpurnar á Prikið til að kveðja hana Hörn okkar því hun og Amín eru á leiðinni til Ungverjalands í læknisfræði... það verður pottþétt rosalega skemmtilegt og forvitnilegt ævintýr og segi ég nú bara góða ferð dúllurnar mínar!!!!
Hey svo vil í nota tækifærið Vanessa mín þar sem ég gleymdi alltaf að segja við þig að ég óska þér innilega til hamingju að vera komin inn í háskólann úti! Þannig að það var nú eins gott því ég kem til ykkar eftir 2 ár pottþétt (þ.e.a.s. ef ég kemst inn :) )
Eníveis ég hef þetta ekkert lengra í bili þar sem ég er að fara að sofa ... skóli á morgun og sonna þannig að ...
Góða nótt og bless bless
Kristveig

Posted at 23:55 by kristveig
Comments (1)  

Wednesday, July 07, 2004
SNIÐUGT

Quiz Me
Kristveig spins tunes as
DJ Dirty Noodle

Get your dj name @ Quiz Me


ýkt sniðugt

Posted at 19:51 by kristveig
Comments (10)  

Sverige

Hej alihop eins og við Svíarnir segjum það:) Eníveis nú er ég komin hingað til Sverige í heimsókn til Pálma Þórs og Vanessu og það er jættebra. Ég kom í gær og þau tóku á móti mér á flugvellinum í Köben. Við ákváðum að fara og fá okkur að borða á Hereford. Þetta var geðveikur matur verð ég nú bara að segja!!! Ég ætlaði að vera svo sniðug og sýna hvað ég kunni í dönsku en viti menn það kom bara e-r franska út úr mér... frekar lélegur árangur þar á ferð hvað varðar dönskukunnáttu mína. Þegar við vorum búin að borða fórum við út á lestarstöð og sóttum farangurinn minn. Ég sá fullt af fólki með áfengi um hönd og spurði þau bara í djóki ... hva er fólk alltaf á fylleríi dag og nótt hér... svo kom í ljós að þetta voru bara Íslendingar... frekar fyndið en allavega ... líklega aðstæður sem maður segir you´d to be there!!! en allavega ég svaf út í morgun og það var æðislegt. Svo fórum við Pálmi Þór að hitta Vanessu en hún fór að vinna í morgun. Svo fórum við að skoða í búðir og eitthvað og ég komst að því að diesel buxur eru ódýrari hér en á Íslandi en allavega keypti mér samt ekki neitt!! Við fengum okkur svo að borða á Burger King og það var bara mjög gott.
Jæja ég er að hugsa um að láta þetta duga í bili hérna frá útlandinu
Kristveig


Posted at 19:46 by kristveig
Comments (2)  

Next Page
Ég er Kristveig og þetta hvu vera bloggið mitt!!



C´est quelqu´un qui m´a dit que tu m´aimais encore,
Serait-ce possible alors ?

Carla Bruni

   

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed